<< til baka

Högg á vatni

Höfundarforlagið Nýhil hefur gefið út ljóðabókina Högg á vatni eftir Hermann Stefánsson, óþolsbók frá góðæristímanum. Bókin er gefin út í hundrað tölusettum og árituðum eintökum og fæst í bókabúðum á höfuðborgarsvæðinu. Hún verður ekki endurútgefin og tekur þannig skortstöðu á íslenskum bókmenntum. Höfundur er nýverið fluttur og býr nú á Suðurhafseyju. Högg á vatni kostar 1800 krónur.

<< til baka