<< til baka

Loksins eitthvað gott tilnefnt!

Nýhilskáldið og vor ástsælasti meistarahöfundur Steinar Bragi, sem gagnrýnendur hata nú að elska að keppast við að ausa lofi, hefur verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu sína Konur – sem Nýhil gaf út fyrir jólin 2008 en Mál og menning síðar keypti réttinn að.

Nýhil undrast það engan veginn að Steinari Braga hafi verið sýndur slíkur sómi og óskar honum hjartanlega til hamingju með upphefðina, og sjálfri sér, en þó sérstaklega þeim sem seinast hoppuðu á jávagninn því betra er seint en aldrei.

<< til baka