<< til baka

Nýhil & Stína


Nýhil gjörir kunnugt:

Sjöunda Stínan, Tímarit um bókmenntir og listir (4. árgangur, 2. hefti, nóvember 2009) er komin í bókabúðir. Um er að ræða glæsilegustu Stínuna frá upphafi, jafnt að innihaldi sem útliti, og það er ekki síst Nýhilistunum Hildi Lilliendahl, Kristínu Eiríksdóttur og Ingólfi Gíslasyni að þakka, því öll eiga þau efni í blaðinu. Kristín Eiríksdóttir á söguna Í öðru landi, Hildur Lilliendahl Fjögur ljóð, og Ingólfur tekur viðtal við sjálfan sig þar sem hann virðist ekki undir litlum áhrifum frá Ásdísi Rán Gunnarsdóttur.

Óhætt er að taka undir orð áróðurs- og almannatengsladeildar útgáfunnar: Stína er tilvalin jólagjöf til allra listunnenda.

Vefsíða tímaritsins er http://www.stinastina.is.

<< til baka